Skinkuhorn
Þessi uppskrift hefur fylgt mér síðan ég byrjaði að búa í Danmörku fyrir að verða 20 árum og ég hef bakað hana ótal sinnum. Þessi horn eru alltaf jafn ljúffeng og slá í gegn hvar sem þau eru borin fram. Það má leika sér með fyllinguna að vild, en þetta er sú útgáfa sem er allra vinsælust á mínu heimili. Uppskriftin gefur 40 horn og því tilvalið að setja strax í frystinn og eiga þar til að grípa í, hvort sem það er með kaffinu eða til að nesta börnin Njótið vel! Ef þú prófar þessa uppskrift þá máttu endilega deila því með mér, með því að taka mynd og deila á Instagram…
Banana og hindberjamauk með vanillu
Ferskt og gott mauk sem er fljótlegt að útbúa. 1 vel þroskaður banani Nokkur hindber 1/4 tsk hreint vanilluduft Ef notuð eru fersk hindber þarf bara að skola þau vel, en ef notuð eru frosin þarf að skella þeim í sjóðandi vatn í 1 mínútu eða gufusjóða í nokkrar mínútur. Allt maukað saman með töfrasprota eða stappað saman með gaflli fyrir grófari áferð. Geymist í sólarhring í ísskáp í vel lokuðu íláti og mánuð í fyrsti. Ef þú prófar þessa uppskrift þá máttu endilega deila því með mér, með því að taka mynd og deila á Instagram með #infantiais eða merkja myndina með @infantia.is
Sætar kartöflur
Sætar kartöflur eru frábærar sem fyrsta fæða barnsins, þær eru næringarmiklar og sæta bragðið sem einkennir þær gerir það auðvelt að kynna þær fyrir barninu þó það sé jafnvel eingöngu 4-5 mánaða gamalt. Það vefst fyrir sumum hvar og hvernig á að byrja svo hér fylgir er ótrúlega einföld uppskrift sem gott er að byrja á. Mér finnst auðveldast að gufusjóða þær en það er líka hægt að baka þær heilar í ofni þar til gaffall rennur í gegn þegar stungið er í (uþb. 1-1,5 klst.) og skafa svo innan úr hýðinu og mauka. 2 litlar sætar kartöflur eða 1 stór Sætu kartöflurnar þvegnar, afhýddar og skornar í teninga, settar í gufusuðusigti…
Kjötbollur
Þegar ég var yngri og heyrði orðið kjötbollur, voru kjötfarsbollur alltaf það fyrsta sem mér datt í hug, enda þekkti ég ekki aðrar en slíkar, ýmist steiktar á pönnu eða soðnar með hvítkáli, þótti þær góðar þá en hef aldrei eldað slíkar sjálf og borða ekki í dag. Þegar ég fluttist til Danmerkur kynntist ég nefnilega alvöru kjötbollum eða “frikadeller” og höldum við mikið upp á slíkar á okkar heimili. Þessi uppskrift hefur fylgt mér frá því við bjuggum í Danmörku, er ljúffeng og ótrúelga einföld, því bollurnar eru bakaðar í ofni, ekkert snúa vesen á pönnu eða slíkt. 500 g nautahakk (endilega nota alveg hreint hakk) 1/2-1 laukur, fer eftir stærð (ég…
Sætkartöflu vöfflur
Þessar vöfflur eru dásamlegar á bragðið og fullkomnar fyrir lilta munna, þær eru passlega mjúkar að innan og örlítið stökkar að utan. Fullar af góðu hráefni, góðar á bragðið, góðar fyrir börn á öllum aldri og fullorðna. 1 bolli hveiti 1/2 bolli heilhveiti 1 bolli hafrarmjöl (sett í blandara/matvinnsluvél og gert fínna) 3 tsk lyftiduft 1 1/4 tsk kanill (ceylon kanill) 1/8 tsk sjávarsalt 2 egg 1 bolli kókosmjólk 1/2 bolli AB mjólk 40 g smjör, brætt 1/2 bolli sæt kartöflu mauk (sætar kartöflur gufusoðnar og maukaðar með smá soðvatni) 3 tsk Sukrin Gold Byrjað er á að búa til sætkartöflumauk sé það ekki þegar til í ísskápnum, en það er gert með…
Sykurlaus hindberjasulta
Ótrúlega einföld og ljúffeng hindberjasulta sem inniheldur engan hvítan sykur, hana má í raun nota með hverju sem er, vöfflunum, pönnukökunum, ristaða brauðinu, ostunum og kexinu, hrökkbrauðinu, út á hafragrautinn eða chia grautinn, í barnasæluna eða bara hvað sem ykkur dettur í hug. Það er í raun hægt að nota hvaða ber sem er en þar sem hindber eru sérstöku uppáhaldi hjá mínu fólki verða þau alltaf fyrir valinu. 300g frosin hindber 130g döðlur, klipptar í litla bita 1/2 dl vatn Öllu skellt í lítinn pott og látið sjóða í 20 mínútur, töfrasprotinn settur aðeins ofaní í lokin og allt maukað vel. Sett í sterílar heitar sultukrukkur, lokað og strax í ísskápinn. En…
Banana lummur – barna og fullorðins
Ótrúlega einfaldar, gómsætar og bráð hollar fyrir alla munna heimilisins, tilvaldar í nestisboxið, sem millimál eða þegar komið er heim úr skóla/leikskóla í staðinn fyrir brauðið sem svo oft er leitað í. 1 egg 1 vel þroskaður banani 1 dl haframjöl (ca 30g) Kanill, ég nota alltaf Ceylon kanil og mæli indregið með honum Bananinn er stappaður vel, hrært saman við eggið og haframjölið og svo er sett “dash” af kanil, algjört smekksatriði hversu mikið. Steikt á smurðri pönnu (kókosolía, smjör) við meðalhita þar til lumman er föst í sér og svo snúið við og steikt á hinni hliðinni í smá stund. Passlegt að gera t.d. 3 litlar lummur í einu á lítilli…
Bananabrauð
Hún Júlíana á Mamie.is snappinu deildi í sumar uppskrift af ótrúlega einföldu, bráðhollu og góðu bananabrauði sem ég alveg féll fyrir og ég fékk leyfi hjá henni til að deila uppskriftinni með ykkur hér. 1 1/2 bolli hafrar 1/4 tsk salt (ég nota alltaf Maldon eða Himalaya) 1 tsk matarsódi (ég nota ál frían frá Kaja Organic) 1/2 tsk vanilludropar (ég nota hreint vanillu duft í staðinn, 1/4 tsk) 1 dós kókosjógúrt frá BioBú (ég á það sjaldnast til og nota í staðinn 170g af Ab mjólk) 1/4 bolli ólífuolía 2 egg 2 vel þroskaðir og stappaðir bananar Öllu blandað saman og sett í vel smurt form, reyndar enn betra að klæða það með…
Banana vöfflur
Ljúffengar vöfflur sem passa með nánast hverju sem er. Það er vel hægt að bera þær fram með smjöri og áleggi, rjóma og sultu eða eins og hér, frískandi hindberja sultu/dressingu. Mér finnst gott að gera vöfflurnar litlar því þá henta þær fyrir smáar hendur. Pjakkurinn minn er alsæll þegar hann fær svona í vöfflu í hönd og kjammsar á þeim eintómum með bestu lyst. Þessar vöfflur henta líka vel í nestisboxið hjá eldri börnum. Gott að frysta og lítið mál að velgja þær aðeins í brauðristinni eftir að þær hafa þiðnað. 50g haframjöl 50g hveiti 50g heilhveiti 2 tsk lyftiduft 1/2 tsk hreint vanilluduft 1 dl vatn 1/2 dl kókosmjólk 1 egg 2…
Öllebröd
Öllebröd eða øllebrød eins og það heitir á dönsku er mjög vinsælt að gefa börnum í Danmörku enda Danir þekktar rúgbrauðsætur. Öllebröd hefur líka verið vinsælt hjá öllum mínum börnum. Í Danmörku er notað rúgbrauð í öllebröd en ég hef notað maltbrauð hérna heima. Íslenska seydda rúgbrauðið sem við þekkjum hentar ekki vegna þess að það inniheldur ALLT of mikinn sykur og öll dönsku rúgbrauðin hér á markaði virðast flest ef ekki öll innihalda kjarna sem ekki er hentugt fyrir lítil börn. Þetta er sáraeinfalt að búa til og ég hvet ykkur til að prófa 2 sneiðar maltbrauð 1 1/2 dl vatn 1/2 dl brjóstamjólk, þurrmjólkurblanda eða stoðmjólk 1 tsk fita Brjótið brauðið…